Ligg undir sæng með frosin vínber, góða bók og parmaskinku.
Ætla að halda mig í bælinu fram eftir degi.
Það er nefnilega ömmudekurdagur í dag :)Sætasta krútt í heimi heimsótti mig í gærkvöldi ásamt foreldrum sínum og hann er farinn að myndast við að hjala.
Horfir á alla af mikilli ákefð og reynir að herma eftir allskyns hljóðum.
Hann er dásamlegur, sjáiði bara!
Þetta er í alvöru talað ein flottasta mynd af honum sem ég hef séð! Þú ættir að senda hana í eitthvert blaðið og leyfa fleirum að njóta góðs af henni!
SvaraEyða