fimmtudagur, 21. ágúst 2008

Köngulærnar mínar

Ég sef með varann á mér á næturnar. Mér varð nefnilega á í hreinlætisæðinu, sem helltist yfir mig viku fyrir vinnu, að strádrepa köngulær í hrönnum við gluggaþvott.

Ég veit þær ætla að hefna sín. Það er bara spurning hvenær.

Vefirnir hlaðast upp utan á öllum gluggum og ég sé að hernaðaráætlun helvítis spideranna er að vefja húsið inn í vef og éta svo innihaldið........

MIG og í leiðinni saklausa nágranna mína, köttinn, framhaldsskólanemann, bifvélavirkjann og um það bil hálft tonn af hrossaflugum sem halda til hér ásamt öðrum heimilismeðlimum í friði og spekt.

Það er hættulegt að koma í heimsókn þessa dagana nema hafa flugbeittan hníf í vasanum til að skera sig lausan í neyðartilfelli!
Viltu kaffi væna/væni? ;)


1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ohhh Áslaug mín hvað ég er glöð að þú sért byrjuð að blogga aftur.
Verð að reyna hitta þig þegar ég kem í bæinn, grunar að þú eigir eftir að segja mér ýmnislegt :)
knús og kossar
Júlía