laugardagur, 28. júlí 2007

The secret :)

Las fyrstu síðurnar í þessari bók í ferðalaginu.
Var sagt m.a. að þetta virki þannig að það sem maður vænti verði að veruleika.
ÉG ER VISS UM AÐ ÉG VERÐ TÁGRÖNN!!!!!

Nú er ég búin að vænta þess í 4 daga sem sagt og árangurinn lætur ekki á sér standa.
Ég sá það í morgun að bumban hefur minnkað heilan haug!
Var að vísu svöng og ákvað að meta ekki bumbustærð eftir að ég tróð í mig hálfri maltdós og 2 smörrebrauðum sem voru afgangs frá brjálæðislegri dansk/íslenskrar veisu gærkvöldsins.

Það varð náttúrulega að sýna henni Myriam hvernig íslendingar haga sér í ekta heimapartýum svo við skelltum upp kássu af smurbrauði með stöffi sem ég kom með frá DK, opnuðum og kláruðum brennivínsflösku, kassa af bjór og slatta af jagermeister ;)

Prentarinn, prentsmiðjan og lesbían lögðu fram hjálparhönd og Myriam stóð sig ferlega vel í að sötra og fara á trúnó að íslenskum hætti.

Mikið var gaman :)

Karldurgur, ef þú hættir að vinna svona endalaust gætirðu kannski litið við og fengið eins og einn kaffibolla og jafnvel eitthvað með kaffinu, svona í leiðinni á meðan ég fæ GAMALMENNANUDD!!!

Farin að fá mér meira malt og smörrebrauð :)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jahá, Haugnesíngar hefðu alveg þegið gestakomu, ef þeir hefðu ekki á lángwerstufjarðakjálkanum, frekar en heima hjá sér. Vona að þú hafir nú ekki ætt að auðu húsi, eins & þú værir´vís til með að hafa gert, frekar en að símast.

Fínar ömmur þarna á ferðinni, leitt að hafa misst af þeim í þessum 'iceland4oldís' túr þínum.

Þú ættir bara að gerast ferðamálafrömuður & sinna því í aukastarfi í fjölmörgum frístundum þínum.

Heilsan á liðið.

S.

Nafnlaus sagði...

Jæja amma gamla, hætt þessu leiðsögumannaveseni og getur kannski farið að sinna ungum vinum þínum sem hvorki eru ömmur, afar eða verðandi slíkir (ekki í nánustu allavega)????????

L

Nafnlaus sagði...

......og hey, eigum við ekki að halda áfram að hjóla amma gamla? Hjólasumarið byrjaði svo vel hjá okkur tihí ;)

L

Nafnlaus sagði...

Fyrst fleiri virðist ætla að taka upp líkamstjónandi athæfi bendi ég góðfúslega á að það er ekkert garantí að maður útvíkki nuddtilboðið út fyrir Heimónördinn. Þó er ekkert útilokað í þeim efnum ef vel er beðið.

Heimilisfræðinördinn sagði...

Hamzdr! Hvernig verður staðsetning ykkar á Fiskidögunum?
Nú er maður nefnilega orðinn alvarlega veikur af ferðabakteríunni og verið að ræða ferðalag á Norðurlandið þá helgina.

Er að spá í að hafa námskeið í íslenskri matargerð fyrir túrhesta næsta vetur, á öllum aldri, flokkast það ekki undir ferðamálafrömuð?
Heilsa á þitt sæta lið :)

L, hjóla, spóla, skoða það þegar ég er búin að lesa Harry Potter.

Karldurgur, þarft ekkert að útfæra nuddið!
Ég áða!

Nafnlaus sagði...

hver er þessi karldurgur eiginlega ... og hvaða einokun er þetta á nuddinu, hann hefur nú vonandi tvær hendur!
Og takk fyrir síðast amma mín, yndislegar snittur hjá þér, og þú veist ég hef nú dáldið snittuþol, kannski þú hafir nokkrar í nesti til Dalvíkur *blikk blikk*

Prentsmiðjan

Nafnlaus sagði...

Hurðu, kona ..

Nafnlaus sagði...

Ja, ég var í dag að sjóða niður humarklær, í einhverja súpu framreidda um þá helgi sem að frí 4 allez í boði Samherjanna, en útréttuð tilbúin í skálar með brauði fyrir þá sem að vilja þiggja.


Það þýðir líklega að við verðum heima við.

Velkomin.

S.

Nafnlaus sagði...

vegna ekki:)